Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 21.12.2011
| 11:31
Nökkvi sigraði á golfmóti á Flórída
Nökkvi Gunnarsson, golfkennari hjá Nesklúbbnum, sigraði á golfmóti fyrir atvinnumenn sem fram fór í Orlando á Flórída í gær.
Um var að ræða eins dags mót og lék Nökkvi hringinn á 69 höggum sem er þrjú högg undir pari vallarins og var sá eini sem komst undir 70 höggin í mótinu.
Fyrir sigurinn fékk Nökkvi 400 dollara í sinn hlut.
Frá þessu er greint á netmiðlinum Kylfingi.is en þar kemur einnig fram að Nökkvi hafi leikið á fleiri samskonar mótum á Flórída að undanförnu sem séu hluti af mótaröð sem nefnist OGA-mótaröðin og stendur fyrir Open Golf America. Nökkvi hafði tvívegis leikið á 71 höggi síðustu daga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






