Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 2.1.2012
| 11:52
| Uppfært
14:34
Bubba Watson í hóp með Birgi Leifi
Bandaríski kylfingurinn Bubba Watson er kominn í félagsskap með Birgi Leifi Hafþórssyni og örfáum öðrum eftir að hafa spilað 18 holu hring á 14 undir pari síðastliðinn fimmtudag.
Watson lék heimavöll sinn Estancia í Scottsdale á 58 höggum og er því um að ræða völl sem er par 72. Watson lék af öftustu teigum vallarins sem gerir hann 6.580 metra langan. Þess má geta að Watson á einnig vallarmetið á tveimur öðrum teigum. Netmiðillinn Kylfingur.is greindi frá.
Birgir Leifur lék sinn gamla heimavöll á Akranesi á 58 höggum haustið 2010 en hann er einnig par 72. Einungis er vitað um örfáa kylfinga í heiminum sem hafa komist lengra undir par en 14 högg á einum hring.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






