Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 8.1.2012
| 23:48
Tinna í 17. sæti eftir fyrsta hring
Tinna Jóhannsdóttir lék fyrsta hringinn á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi á 74 höggum sem er eitt högg yfir pari vallar en leikið er á La Manga á Spáni.
Tinna er í 17. sæti eftir fyrsta hringinn af 102 keppendum. Gert er ráð fyrir því á vefsíðu Evrópumótaraðarinnar að um 35 kylfingar komist áfram á lokaúrtökumótið að loknum 72 holum.
Tinna fékk skolla á fyrstu tveimur holunum en engan eftir það. Hún paraði þær holur sem eftir voru nema þá þrettándu þar sem hún nældi sér í fugl. Fín byrjun hjá Tinnu og stöðugt golf sem er einmitt lykillinn að því að komast í gegnum erfið úrtökumót.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






