Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 9.1.2012
| 16:45
| Uppfært
17:12
Tinna á pari í dag - er í 8. sæti
Tinna Jóhannsdóttir kylfingur úr Keili lék vel á öðrum degi á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á La Manga á Spáni í dag. Hún endaði á pari eða 71 höggi en hún lék á norðurvellinum að þessu sinni. Tinna byrjaði mjög vel og var tveimur höggum undir pari eftir fyrri níu holurnar.
Tinna er þegar þetta er skrifað jöfn nokkrum kylfingum í áttunda sæti en talið er að 30 til 35 kylfingar komist áfram. Ólíklegt er að staða Tinnu breytist mikið en fáir kylfingar eiga eftir að ljúka leik.
Haldi Tinna svona áfram næstu tvo daga ætti hún að eiga góða möguleika að komast á lokamótið sem fram fer 15. janúar. Hún er samtals á einu höggi yfir pari eftir tvo hringi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






