Fjórir kylfingar í Team Iceland-hópnum
Nýráðinn landsliðsþjálfari í golfi, Úlfar Jónsson, valdi í síðasta mánuði sinn fyrsta afrekshóp. Um var að ræða 51 kylfing á nokkuð breiðum aldri og af báðum kynjum. Úlfar hefur nú skipt þessum kylfingum upp í þrjá hópa samkvæmt tilkynningu frá Golfsambandinu í gær.
Fjórir kylfingar eru í Team Iceland-hópnum sem er hugsaður fyrir kylfinga sem eru á fullu í atvinnumennsku eða hafa hug á því að taka skrefið úr áhugamennsku og yfir í atvinnumennsku. Þrír atvinnumenn eru í Team Iceland að svo stöddu: Birgir Leifur Hafþórsson, Stefán Már Stefánsson og Tinna Jóhannsdóttir. Ásamt þeim er áhugamaðurinn Ólafur Björn Loftsson í Team Iceland-hópnum.
A- og B-hópar
Öðrum kylfingum í afrekshópnum hefur verið skipt í tvo hópa, A- og B-hópa. Í A-hópnum eru kylfingar sem sýndu hvað bestan árangur á síðasta ári eftir því sem fram kemur í tilkynningunni. Í A-hópnum eru eftirtaldir kylfingar:
Alfreð Brynjar Kristinsson, Andri Þór Björnsson, Arnar Snær Hákonarson, Arnór Ingi Finnbjörnsson, Axel Bóasson, Birgir Björn Magnússon, Bjarki Pétursson, Gísli Sveinbergsson, Guðjón Henning Hilmarsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús, Kristján Þór Einarsson, Ragnar Már Garðarsson, Rúnar Arnórsson, Þórður Rafn Gissurarson, Anna Sólveig Snorradóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Signý Arnórsdóttir, Sunna Víðisdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir.
Tekið er fram að kylfingar í B-hópnum hafa sömu tækifæri á landsliðsverkefnum með því að ná góðum árangri í viðmiðunarmótum. Úlfar mun fylgjast með framvindunni hjá kylfingunum í vetur, bæði á landsliðsæfingum og í samráði við þjálfara klúbbanna. kris@mbl.is






