Íþróttir
|
Golf
| Morgunblaðið
| 10.1.2012
| 7:05
Woods á Pebble Beach
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods mun hefja leik á árinu í Abu Dhabi Championship í lok janúar. Fyrsta mótið sem Tiger mun taka þátt í á PGA-mótaröðinni verður Pebble Beach National Pro-Am mótið sem fram fer á samnefndum velli sem er einn sá þekktasti í heimi. Woods tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í gær.
Woods sigraði á Chevron World Challenge mótinu í lok síðasta tímabils og því er nokkur spenna á meðal golfáhugamanna um það hvernig Woods muni reiða af á nýju ári.
„Það var frábært að ljúka árinu á jákvæðum nótum. Enn mikilvægara er þó að vera heill heilsu og ég vonast eftir öflugri byrjun á nýju tímabili,“ sagði Tiger Woods á heimasíðu sinni en hann hefur 71 mót á PGA-mótaröðinni á ferlinum og 14 risamót. kris@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






