Tinna komst áfram á lokaúrtökumótið
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili tryggði sér í dag þátttökurétt í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Tinna lék síðasta hringinn í dag á 78 höggum en er engu að síður sex höggum á undan þeim kylfingum sem eru að berjast við að vera á meðal þeirra þrjátíu og fimm sem komast áfram.
Ekki hafa allir lokið leik en ljóst er að Tinna mun komast áfram en hún er á samtals sex höggum yfir pari og er í 16. sæti af 102 keppendum í öðru úrtökumótanna á þessu stigi keppninnar.
Leikið var á tveimur völlum og lék Tinna hringina fjóra á 74, 71, 71 og 78 höggum. Tinna fór ekki að gefa eftir fyrr en á síðustu níu holunum. Fyrri níu holurnar í dag lék hún á tveimur yfir pari en seinni níu á fimm yfir pari og fékk skramba á 10. holu sem var eina holan sem hún spilaði á verra skori en skolla.
Leikið verður á sömu völlum á La Manga-svæðinu á Spáni í lokaúrtökumótinu og hefst það næstkomandi sunnudag. Þar verða leiknir fimm hringir og reiknað er með að þrjátíu kylfingar vinni sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni 2012.






