„Gefur mér byr undir báða vængi“

Tinna Jóhannsdóttir. stækka

Tinna Jóhannsdóttir. mbl.is/gsi

„Ég er mjög sátt. Ég var reyndar sprungin andlega í dag. Maður hefur verið að þjösnast áfram og halda sér á meðal þeirra efstu. Ég kom ekki í þetta mót til að vinna það heldur að halda mér inni til að komast í næsta mót. Ég gerði það og er því bara ánægð,“ sagði Tinna Jóhannsdóttir úr Keili þegar Morgunblaðið náði sambandi við hana að loknum síðasta hringnum á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Tinna hafnaði í 13.-14. sæti í mótinu af 102 kylfingum og komst örugglega áfram á lokamótið en 35 efstu kylfingarnir unnu sér inn þátttökurétt á því móti. Það mun einnig fara fram á La Manga á Spáni og verður leikið á sömu tveimur völlunum og í úrtökumótinu sem Tinna komst nú í gegnum.

Tinna lék síðasta hringinn í gær á 78 höggum en var engu að síður sex höggum á undan þeim kylfingum sem náðu síðustu sætunum sem dugðu til að komast áfram. Tinna lék hringina fjóra á 74, 71, 71 og 78 höggum. Tinna fór ekki að gefa eftir fyrr en á síðustu níu holunum í mótinu en þá var orðið ljóst að einungis stórslys gæti orðið til þess að hún missti af lokamótinu.

Fyrri níu holurnar í gær lék hún á tveimur yfir pari en seinni níu á fimm yfir pari og fékk skramba á 10. holu sem var eina holan sem hún spilaði á verra skori en skolla. Þar fékk hún víti þegar boltinn hreyfðist við það að hún lagði kylfuna niður. Spilamennska hennar var því mjög stöðug en það er einmitt lykillinn að því að ná árangri á úrtökumótum sem þessum.

Nánar er rætt við Tinnu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is