Tinna 4 yfir pari eftir fyrri níu
Tinna Jóhannsdóttir hóf leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina en mótið fer fram í La Manga á Spáni eins og um síðustu helgi þegar Tinna lék á fyrsta úrtökumótinu. Tinna leikur á suðurvellinum í dag og fékk skolla á 4., 5., 7., og 8. holu en fékk par á hinum holunum á fyrri hringnum.
Hún er því með neðstu kylfingunum sem stendur en enn eru ekki allir kylfingarnir farnir út svo margt getur breyst.
Tinna hafnaði í 13. sæti á fyrsta úrtökumótinu og var því örugg inn á þetta síðasta úrtökumót en 37 kylfingar komust áfram. Til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni þarf Tinna að leika frábært golf næstu fjóra dagana en aðeins komast 50 í gegnum niðurskurðinn af 101 keppanda. Efstu 30 kylfingarnir verða svo í flokki 8a sem gefur sæti á flestum mótum á mótaröðinni þannig að markmið Tinnu er að vera á meðal 30 efstu næstu fjóra dagana.






