Tinna á fimm yfir eftir fyrsta hring

Tinna Jóhannsdóttir lék betur á seinni níu holun á La Manga á Spáni. stækka

Tinna Jóhannsdóttir lék betur á seinni níu holun á La Manga á Spáni. Ljósmynd/Jón Júlíus Karlsson Víkurfréttir

Tinna Jóhannsdóttir, kylfingur úr Keili, lauk fyrsta hring á loka-úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á fimm höggum yfir pari eða 76 höggum. Tinna var á fjórum yfir pari eftir fyrri níu holurnar en lék síðari níu á einu yfir.

Mótið fer fram á tveimur völlum á La Manga á Spáni en Tinna lék á norðurvellinum í dag. Hún fékk tvo fugla, fimm skolla og einn tvöfaldan skolla. Ljóst er að Tinna þarf að leika mun betur ætli hún að enda á meðal 50 efstu kylfinganna að loknum fjórum keppnisdögum þegar kemur að niðurskurðinum fyrir síðasta keppnisdaginn. Nái hún því þarf hún svo að vera á meðal 30 efstu til að taka þátt á flestum mótunum á evrópsku mótaröðinni.    

Tinna er jöfn fjórum öðrum kylfingum í 80. sæti af 101 keppanda eftir fyrsta hring. Þeir kylfingar sem eru í kringum 30. sætið eru á einu höggi yfir pari en ekki hafa allir keppendur lokið leik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is