Ólafi boðið á sterkt áhugamannamót
Ólafi Birni Loftssyni, kylfingi úr Nesklúbbnum, hefur verið boðið á sterkt áhugamannamót í Georgíu sem fram fer í byrjun febrúar. Ólafur segir frá þessu í samtali við netmiðilinn Kylfing.is.
Mótið heitir Jones Cup Invitational og fer fram á Ocean Forest-vellinum. Þar sem mótið fer fram í Georgíu er ekki ólíklegt að nafnið sé til heiðurs goðsögninni Bobby Jones sem er líklega þekktasti áhugamaður golfsögunnar.
Ólafur sagði að vegna sigursins eftirminnilega á Cardinal-mótinu í ágúst hefði hann fengið boð um að taka þátt í hinum ýmsu áhugamannamótum.
Á Kylfingi kemur fram að margir þekktir kylfingar á PGA-mótaröðinni hafi tekið þátt í þessu móti á árum áður og þar eru meðal annars nefndir til sögunnar þeir Dustin Johnson, Rickie Fowler og Bubba Watson.






