Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 17.1.2012
| 14:03
| Uppfært
14:34
Tinna náði sér ekki á strik
Tinna Jóhannsdóttir, kylfingur úr Keili, náði sér ekki á strik á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi í dag og lék á 79 höggum. Hún er svo gott sem úr leik en fjöldi keppenda verður skorinn niður úr 100 í 50 að hringnum loknum á morgun.
Tinna er samtals sextán högg yfir pari eftir þrjá hringi en þær sem eru í 46. - 55. sæti eru á átta yfir pari sem stendur en leikið er á tveimur völlum á La Manga á Spáni.
Tinna fékk engan fugl á hringnum í dag en átta skolla og tíu pör.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






