Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 19.1.2012
| 9:16
| Uppfært
9:40
Tinna hafnaði í 97. sæti
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili hafnaði í 97. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi sem lýkur í dag á La Manga á Spáni.
Tinna lék lokahringinn í gær á 79 höggum og lauk leik á samtals 22 höggum yfir pari. Hina þrjá hringina lék hún á 76, 76 og 79 en leikið var á tveimur völlum á svæðinu.
Keppendafjöldi var skorinn niður fyrir lokahringinn í dag en um þrjátíu kylfingar vinna sér inn keppnisrétt á mótaröðinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






