Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 25.1.2012
| 14:33
| Uppfært
16:18
Enginn lokahringur hjá Stefáni og Þórði
Ekkert var úr því að kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr GR lékju lokahringinn á Gloria Old Course Classic-mótinu á þýsku EPD-mótaröðinni í Tyrklandi í dag en að því er fram kemur á vefsíðunni kylfingur.is var völlurinn á floti þegar keppni átti að hefjast í morgun.
Spáð er rigningu í allan dag og því ákváðu mótshaldarar að aflýsa lokahringnum og láta stöðuna frá öðrum hring standa. Þeir Stefán og Þórður komust báðir í gegnum niðurskurðinn í gær en Stefán var í 36. sæti af þeim 47 sem komust áfram og fékk fyrir það jafnvirði 50 þúsund krónur og Þórður varð í 40. sæti og fékk 35 þúsund krónur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






