Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 26.1.2012
| 16:39
| Uppfært
18:33
Tiger undir pari í fyrsta keppnishring ársins
Tiger Woods lék fyrsta keppnishring sinn á árinu undir pari en hann hóf leik á Abu Dhabi Championship-mótinu á Evrópumótaröðinni í nótt. Tiger lék á 70 höggum sem er tvö högg undir pari vallarins en Norður-Írinn Rory McIlroy tók forystuna með því að leika á 67 höggum.
Þeir voru raunar saman í ráshópi ásamt efsta manni heimslistans Luke Donald sem lék á 71 höggi.
Svíinn Robert Karlsson jafnaði skor McIlroys og lék einnig á 67.
Þjóðverjinn öflugi Martin Kaymer hefur þrívegis sigrað á mótinu og kann vel við sig í Abu Dhabi en hann byrjaði illa þrátt fyrir það og lék á 77 höggum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






