Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 27.1.2012
| 14:28
Olesen með forystu í Abu Dhabi
Daninn Thorbjorn Olesen er efstur eftir tvo hringi á Abu Dhabi Championship-mótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Hann lék annan hringinn í dag 67 höggum eða á fimm höggum undir pari og er samtals sjö höggum undir parinu.
N-Írinn Gareth Maybin er í öðru sæti, sex höggum undir pari, og Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods er þriðji á samtals fimm höggum undir pari. Woods lék í gær á 69 höggum eða þremur höggum undir pari.
Jafn Tiger í þriðja sæti er N-Írinn Rory McIlroy en hann lék annan hringinn á 72 höggum eða á pari vallarins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






