Tiger gaf eftir og Rock vann óvæntan sigur

Robert Rock með verðlaunagripinn. stækka

Robert Rock með verðlaunagripinn. Reuters

Ekki tókst Tiger Woods að vinna sitt fyrsta mót í tvö ár eins og stefndi í á tímabili á HSBC-meistaramótinu í Abu Dhabi sem lauk í dag en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Englendingurinn Robert Rock fagnaði óvæntum sigri en hann lék hringina fjóra á 273 höggum eða á samtals 13 höggum undir pari.

Rock er nær óþekktur kylfingur og er í 117. sæti á heimslistanum og sigur hans kom því öllum á óvart. Hann og Tiger Woods voru jafnir fyrir lokahringinn á 11 höggum undir parinu og reiknuðu flestir með því að Tiger myndi loks fagna sigri en Rock sýndi mikinn styrk og sigraði.

N-Írinn Rory McIlroy varð í öðru sæti á 276 höggum og þeir Thomas Björn frá Danmörku, Tiger Woods og N-Írinn Graeme McDowell komu næstir á 277 höggum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is