John Daly lék við hvern sinn fingur

John Daly. stækka

John Daly. Reuters

Rokkstjarna golfsins, John Daly, lék við hvern sinn fingur á fyrsta hring á Katar Masters á Evrópumótaröðinni í morgun og er í 2. sæti. 

Daly lék á 67 höggum sem er fimm höggum undir pari vallarins. Hann er einn í 2. sæti, einu höggi á eftir efsta manni, Gonzalo Fdez-Castano frá Spáni. 

Skorkortin eru oft skrautleg hjá Daly sem tekur gjarnan mikla áhættu í leik sínum en að þessu sinni fékk hann einfaldlega 13 pör og 5 fugla. 

Forvitnilegt verður að sjá hvernig Daly fylgir þessari góðu byrjun eftir en honum veitir ekki af góðum árangri því hann er ekki með keppnisrétt á stærstu mótaröðunum og þarf að treysta á boð frá styrktaraðilum og mótshöldurum.

Daly var alsæll með þessa byrjun á Twitter í dag og líkaði vel að spila við þær aðstæður sem eru í Katar. Hann bætti því við í annarri færslu síðar í dag að hann væri búinn að verða sér úti um Häagen-Dazs-ís og virtist ekki síður ánægður með það. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is