Viðurkenning sterkt vopn
„Ég horfi fyrst og fremst á þetta sem viðurkenningu fyrir alla íslenska golfvelli og íþróttina á Íslandi. Með þessu er verið að gefa íslensku golfi vissan gæðastimpil,“ sagði Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, þegar Morgunblaðið innti hann í gær eftir viðbrögðum við því að Hvaleyrarvöllur rataði inn á lista yfir 100 bestu golfvelli í Evrópu hjá netmiðlinum Top100 golfcourses.
Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst hefur íslenskur golfvöllur ekki ratað inn á slíka lista fyrr en netmiðillinn igolf.is vakti athygli á listanum á þriðjudag.
Ýmsir golffjölmiðlar búa reglulega til ýmsa lista yfir bestu golfvellina í heiminum eða á ákveðnum svæðum. Í þessu tilfelli er um að ræða breskan vef og valdi hann hundrað bestu golfvellina í Evrópu utan Bretlands og er Hvaleyrin í 99. sæti. Ólafur hafði ekki haft veður af því að hinn glæsilegi völlur þeirra Hafnfirðinga myndi rata inn á listann.
„Ég hafði ekki hugmynd um þetta fyrr en mér var bent á þetta. Við höfum alltaf verið með bullandi minnimáttarkennd gagnvart golfvöllunum okkar en það er engin ástæða til þess. Ætli það sé ekki nokkurn veginn það eina sem við Íslendingar höfum verið með minnimáttarkennd út af gagnvart öðrum þjóðum,“ sagði Ólafur léttur.
Sjá lengra viðtal við Ólaf Þór Ágústsson framkvæmdastjóra Keilis í Mogganum í dag.






