John Daly efstur án þess að snerta kylfu
Þrátt fyrir að þessi mynd sé tæplega árs gömul af John Daly er hann yfirleitt samur við sig þegar kemur að klæðaburði. golfsupport.nl/Jos Linckens
John Daly, hinn skrautlegi kylfingur, er efstur eftir tvo daga á Katar Masters-mótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Daly þurfti þó ekki að fara út í dag en það var vegna veðurs. Mikill vindur er á svæðinu og áður en kom að því að Daly færi út var keppni frestað.
Conxalo Fernandez Castano frá Spáni sem var efstur að loknum fyrsta hring fór hinsvegar út og fékk skolla á tveimur af sjö holum sem hann náði að leika áður en mótanefndin tók ákvörðun um frestun. Castano féll við það niður fyrir Daly sem er nú einn í efsta sæti á 5 undir pari.
Castano er í öðru sæti ásamt tveimur öðrum kylfingum á fjórum höggum undir pari.
Um leið var ákveðið að stytta mótið í 54 holur og ætti það e.t.v. að vera jákvætt fyrir Daly en úthald og einbeiting eru ekki hans bestu kostir. Eins og fram kom í gær hér á mbl.is er Daly ekki með keppnisrétt á stærstu mótaröðunum og þarf að treysta á boð frá styrktaraðilum og mótshöldurum.
Myndskeið frá fyrsta keppnisdegi má sjá hér fyrir neðan. Fleiri myndskeið má svo nálgast með því að velja golf á forsíðu íþróttasíðunnar; mbl.is/sport/golf.






