Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 5.2.2012
| 9:41
| Uppfært
16:46
Ólafur nær sér ekki á strik í Georgíu
Ólafi Birni Loftssyni, kylfingi úr Nesklúbbnum, gengur illa á sterku áhugamannamóti í Georgíuríki í Bandaríkjunum sem honum var boðið að taka þátt í eftir frækinn sigur á sterku áhugamannamóti í Norður-Karólínu í fyrra.
Að loknum 36 holum er Ólafur í 69. sæti af 90 keppendum sem hófu leik á samtals 16 yfir pari. Ólafur lék fyrsta hringinn á 83 höggum og annan á 77 höggum.
Greinilegt er á skorinu að völlurinn er erfiður viðureignar því allir keppendurnir fyrir utan einn eru yfir parinu samtals. Leiknar eru 54 holur í mótinu og er því einn hringur eftir.
Ólafur er á síðasta ári sínu í bandaríska háskólagolfinu og stundar nám í Charlotte.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






