Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 10.2.2012
| 17:00
| Uppfært
22:41
McIlroy og Bjorn með forystu
N-Írinn Rory McIlroy og Daninn Thomas Bjorn eru með forystu eftir tvo hringi á Dubai Desert Classic-mótinu í golfi sem haldið er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Þeir hafa báðir leikið á 131 höggi eða 13 höggun undir pari vallarins en báðir léku þeir annan hringinn á 65 höggum eða sjö höggum undir pari.
Spánverjinn Rafael Cabrera-Bello fylgir fast á eftir en hann hefur leikið á 132 höggum og í fjórða sæti eru Þjóðverjinn Martin Kaymer, Englendingurinn Lee Westwood og Þjóðverjinn Marcel Siem sem allir hafa leikið á 134 höggum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






