Phil Mickelson frábær á Pebble Beach
Phil Mickelson lék óaðvinnanlegt golf í gær á síðasta hring Pepple Beach mótsins í Kaliforníu. Reuters
Phil Mickelson kom sá og sigraði á Pebble Beach mótinu í Kaliforníuríki sem er hluti af PGA-mótaröðinni í golfi. Mickelson var frábær á síðasta hringnum sem hann lék á átta höggum undir pari eða 64 höggum og tryggði sér þannig tveggja högga sigur en næsti maður var Charlie Wi frá Suður-Kóreu.
Mickelson var samtal á 17 höggum undir pari á mótinu eða 11 höggum á undan Tiger Woods sem átti ekki góða helgi að þessu sinni. Hann lék síðasta hringinn til að mynda á 75 höggum eða þremur yfir pari.
Mickelson sagði þó eftir mótið að hann væri ánægður með nærveru Woods. „Ég held að Woods dragi fram það besta í mér en það þó aðeins síðustu fimm árin. Fyrir það átt ég ekki möguleika gegn honum.“
Mickelson er ellefti á heimslistanum sem birtur var í morgun eftir sigurinn en hann færist upp um sex sæti milli vikna. Hann segist vera í góðu formi og því væntanlega til alls líklegur næstu vikurnar. Tiger Woods er smátt og smátt að klífa listann en hann er nú í 18. sæti á eftir Sergio Carcia sem er sautjándi.
Luke Donald er enn besti kylfingur heims samkvæmt listanum en Lee Westwood er í 2. sæti og Rory Mcllroy í því þriðja.






