Tíu bestu golfvellir Íslands?

Jóhann Pálsson slær flatirnar á Hvaleyrarvelli og tíkin Ásta er með í för. stækka

Jóhann Pálsson slær flatirnar á Hvaleyrarvelli og tíkin Ásta er með í för. mbl.is/Golli

Breska vefsíðan Top 100 golf courses of the world hefur raðað tíu bestu golfvöllum Íslands eftir gæðamati síðunnar en þessi sama vefsíða var á dögunum með Hvaleyrarvöll á lista yfir 100 bestu golfvelli Evrópu utan Bretlandseyja.

Frá þessu er greint á vefmiðlinum iGolf.is. Hvaleyrarvöllur er eðlilega í 1. sæti þar sem hann var eini íslenski völlurinn á topp 100-listanum og raunar fyrsti íslenski völlurinn til að komast inn á slíka lista en ýmsir fjölmiðlar í golfheiminum taka slíka lista saman. 

Hjá iGolf kemur fram að Frakkinn Cédric Etienne Hannedouche hafi séð um úttektina á íslensku völlunum en hann bjó hérlendis í fimm ár og er með íslenskan ríkisborgararétt. 

Margir glæsilegir níu holu golfvellir eru á Íslandi en enginn þeirra er á umræddum topp 10-lista og því má draga þá ályktun að miðað hafi verið við 18 holu velli í úttektinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Golf — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Laugardaginn 19. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Mánudaginn 7. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Mánudaginn 16. apríl

Föstudaginn 13. apríl

Fimmtudaginn 12. apríl

Sunnudaginn 8. apríl

Laugardaginn 7. apríl


finnur.is