Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 17.2.2012
| 8:34
| Uppfært
12:00
Phil Mickelson í stuði þessa dagana
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson byrjar árið með látum á PGA-mótaröðinni og er efstur að loknum fyrsta degi á Northern Trust-mótinu.
Mickelson sigraði síðasta sunnudag á móti á hinum fræga Pebble Beach-velli og fylgdi því eftir í gærkvöldi á Riviera Country club-vellinum.
Mickelson lék á 66 höggum sem er fimm högg undir pari og vippaði ofan í á síðustu holunni og lauk því hringnum með glæsibrag. J.B. Holmes og Hunter Mahan eru höggi á eftir Mickelson.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






