Íþróttir
|
Golf
| mbl
| 20.2.2012
| 9:19
| Uppfært
10:36
Haas vann í bráðabana
Bandaríkjamaðurinn Bill Haas hrósaði sigri á Northern Trust Open í golfi sem lauk seint í gærkvöld. Úrslitin réðust í bráðabana en þeir Haas, Phil Mickelson og Keegan Bradley luku allir keppni á sjö höggum undir pari vallarins.
Haas tryggði sér sigurinn á annarri holu í bráðabana með því að fá fugl og fagnaði þar með fjórða sigri sínum á móti í PGA-mótaröðinni. Haas ætti að eiga fyrir salti í grautinn en fyrir sigurinn fékk hann jafnvirði 140 milljóna króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






