Íþróttir
|
Golf
| Morgunblaðið
| 21.2.2012
| 8:25
Keilir fær liðstyrk
Sveit Keilis í Hafnarfirði verður væntanlega illviðráðanleg í 1. deild sveitakeppni GSÍ næsta sumar en Kristján Þór Einarsson og Ingi Rúnar Gíslason munu að öllum líkindum ganga í klúbbinn í vikunni.
Inga Rúnari var á dögunum sagt upp störfum sem þjálfara hjá Kili í Mosfellsbæ en þar hefur hann þjálfað og spilað undanfarin níu ár. Samstarf hans og Kristjáns mun halda áfram og því mun Kristján einnig ganga í raðir Keilis.
Rætt er við Inga Rúnar í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







