Tiger á toppnum en McIlroy í basli

Rory McIlroy og Tiger Woods voru í sama hópi og ræða hér málin eftir 6. ... stækka

Rory McIlroy og Tiger Woods voru í sama hópi og ræða hér málin eftir 6. holuna á Doral-vellinum. AFP

Tiger Woods og Rory McIlroy, tveir fremstu kylfingar heims, byrjuðu á ólíkan hátt á fyrsta degi WGC meistaramótsins á Doral-vellinum í Miami en fyrsta hring lauk seint í gærkvöld.

Tiger lék á 66 höggum og er á toppnum ásamt Freddie Jacobson frá Svíþjóð, Sergio Garcia frá Spáni, Graeme McDowell frá Norður-Írlandi og Bandaríkjamanninum Bubba Watson. Þá er Phil Mickelson einu höggi á eftir þeim ásamt þremur í viðbót.

McIlroy átti hinsvegar í mesta basli og lék fyrsta hringinn á 73 höggum en hann fékk sex skolla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda