Magnús og Sigrún unnu í KR-heimilinu

Guðrún G. Björnsdóttir, Sigrún Ebba Tómasdóttir, Hrefna Finnsdóttir og Kolfinna …
Guðrún G. Björnsdóttir, Sigrún Ebba Tómasdóttir, Hrefna Finnsdóttir og Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir voru í verðlaunasætum í kvennaflokki.

Magnús K. Magnússon úr Víkingi og Sigrún Ebba Tómasdóttir úr KR sigruðu á Grand Prix móti KR í borðtennis, sem fram fór í KR-heimilinu við Frostaskjól í gær.

Magnús lagði Davíð Jónsson úr KR 4-0 (11-7, 12-10, 11-5, 11-9) í úrslitum. Í undanúrslitum vann Magnús sigur á Gunnar Snorra Ragnarsson úr KR, 4-1 en Davíð vann Daða Frey Guðmundsson úr Víkingi, 4-3.

Sigrún Ebba vann Guðrúnu G. Björnsdóttur úr KR 4-3, (6-11, 11-4, 13-11, 9-11, 11-7, 5-11, 11-7) í jöfnum úrslitaleik. Sigrún vann Hrefnu Finnsdóttur úr HK, 4-0, í undanúrslitum en Guðrún vann Kolfinnu Bergþóru Bjarnadóttur úr HK, 4-0, í hinum undanúrslitaleiknum.

Pétur Marteinn Tómasson úr KR sigraði í B-keppninni.

Magnús K. Magnússon, fyrir miðju, og þeir Davíð Jónsson og …
Magnús K. Magnússon, fyrir miðju, og þeir Davíð Jónsson og Gunnar Snorri Ragnarsson með verðlaunin í karlaflokki.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert