Tiger æfir á ný

Tiger Woods hefur hafið léttar æfingar á ný.
Tiger Woods hefur hafið léttar æfingar á ný. AFP

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur hafið léttar æfingar á ný eftir aðgerð sem hann gekkst undir í lok mars vegna klemmdrar taugar í mjóbaki. Haft er eftir Mark Steinberg umboðsmanni Woods á ESPN að kylfingurinn hafi æft sig í að pútta og vippa fyrir utan heimili sitt í Flórída síðustu daga í léttum æfingum.

Tiger Woods missti af Mastersmótinu vegna meiðslanna, en er nú á batavegi og verður líklega klár í slaginn snemma í sumar. Steinberg ítrekar þó að enn sé ekki komin nein dagsetning á endurkomu Woods, sem aðeins hefur tekið þátt í fjórum PGA golfmótum það sem af er árinu vegna meiðslanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert