Frábær hringur hjá Wood

Chris Wood lék vel í dag.
Chris Wood lék vel í dag. AFP

Enski kylfingurinn Chris Wood lék frábærlega á síðasta hring á Opna breska meistaramótinu í golfi í dag, kom inn á 65 höggum eða sjö höggum undir pari.

Wood jafnaði þar með við Dustin Johnson sem lék þennan leik á öðrum degi mótsins. Með þessum góða árangri lauk Wood leik á fimm höggum undir pari og er sem stendur í 19. sæti. Johnson er í þriðja sæti ásamt Sergio Garcia og eru þeir að hafja leik í þessum töluðum orðum í næstsíðasta ráshópi.

Daninn Thomas Björn lék á fimm höggum undir pari í dag og er því samtals á fjórum höggum undir pari og í 24. sæti sem stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert