McIlroy og Fowler ræstir út kl. 13.40

Rory McIlroy á 14. flöt í gær.
Rory McIlroy á 14. flöt í gær. AFP

Spennan magnast á opna breska meistaramótinu í golfi sem lýkur í dag. Flest augu beinast að Norður-Íranum Rory McIlroy sem hefur sex högga forystu á næsta mann, Bandaríkjamanninn Ricky Fowler, fyrir lokahringinn. McIlroy lék fyrstu þrjá hringina á samtals 16 höggum undir pari.

McIlroy og Fowler eru saman í síðasta ráshópnum í dag og verða þeir ræstir út klukkan 13.40 að íslenskum tíma á Royal Liverpool-vellinum í Holylake.

Fylgjast má með stöðunni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert