Ólafía og Guðrún Brá settu vallarmet

Guðrún Brá Björgvinsdóttir setti vallarmet í dag eins og Ólafía …
Guðrún Brá Björgvinsdóttir setti vallarmet í dag eins og Ólafía Þ. Kristinsdóttir. Styrmir Kári

Íslandsmótið í golfi er nú hálfnað á Leirdalsvelli þar sem Birgir Leifur Hafþórsson er í forystu í karlaflokki og þær Ragnhildur Kristinsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir leiða í kvennaflokki.

Á öðrum hring í dag settu þær Ólafía og Guðrún Brá Björgvinsdóttir vallarmet, þegar þær fóru hringinn á 71 höggi eða einu undir pari. Þær bættu þar með vallarmet Ragnhildar Sigurðardóttur frá árinu 2009 um eitt högg.

Sjá:

Birgir Leifur með fjögurra högga forystu

Ragnhildur og Ólafía efstar eftir annan hring

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert