Kristján og Valdís Þóra með forystu

Valdís Þóra Jónsdóttir er með forystu í kvennaflokki.
Valdís Þóra Jónsdóttir er með forystu í kvennaflokki. mbl.is/Styrmir Kári

Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili hefur eins höggs forystu í karlaflokki á sjötta móti Eimskipsmótaraðarinnar sem leikin er á Garðavelli Akranesi. Í kvennaflokki leiðir Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni. Á morgun leika kylfingar annan hringinn af þremur en mótinu lýkur á sunnudaginn.

Kristján Þór lék hringinn í dag á 69 höggum eða 3 höggum undir pari. Skorkort Kristjáns innihélt 12 pör, 3 fugla og einn örn. Í öðru sæti á 70 höggum eða 2 höggum undir pari er Guðni Fannar Carrico úr Golfklúbbi Suðurnesja. Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili, Stefán Már Stefánsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur eru jafnir í þriðja sæti en þeir léku hringinn í dag á 73 eða á 1 höggi yfir pari.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er í forystu í kvennaflokki á 71 höggi eða 1 höggi undir pari, Valdís fékk í dag 4 fugla, 12 pör, 1 skolla og 1 skramba(+2). í öðru sæti er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 72 höggum eða á pari vallarins. Í þriðja sæti er Þórdís Geirsdóttir úr Golfklúbbnum Keili á 75 höggum eða 3 höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert