Kristján Þór heldur forystunni

Kristján Þór Einarsson.
Kristján Þór Einarsson. Ljósmynd/golf.is

Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili er með forystu eftir tvo hringi af þremur á  sjötta á sjötta stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar sem fram fer á Garðavelli Akranesi.

Kristján Þór lék í dag á 74 höggum og samtals á einu höggi undir pari eftir 36 holur. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er annar á 2 höggum yfir pari, hann lék í dag á 73 höggum. í þriðja sæti er Arnór Ingi Finnbjörnsson  úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 4 höggum yfir pari. Þessir þrír kylfingar munu skipa Tiger hollið á morgun þegar lokahringurinn fer fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert