Karen stigameistari í kvennaflokki

Karen Guðnadóttir er stigameistari í kvennaflokki.
Karen Guðnadóttir er stigameistari í kvennaflokki. mbl.is/Árni Sæberg

Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja varð í dag stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar í golfi árið 2014 eftir að hafa lent í öðru sætinu á lokamóti sumarsins, Goðamótinu, sem fram fór á Jaðarsvelli.

Tinna Jóhannsdóttir fagnaði sigri á mótinu í dag. Hún leiddi fyrir lokahringinn og spilaði á 77 höggum í dag, en hringina þrjá lék hún á 227 höggum. Karen varð önnur á 231 höggi og þriðja varð Sara Margrét Hinriksdóttir úr Golfklúbbnum Keili á 233 höggum.

Kvennaflokkur:
1.sæti : Tinna Jóhannsdóttir GK 75-75-77 = 227 (+14)
2. sæti : Karen Guðnadóttir GS 75+75+81 = 231 (+18)
3. sæti : Sara Margrét Hinriksdóttir GK 78+77+78 = 233 (+20)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert