Birgir Leifur lék á tveimur undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék fyrsta hringinn á 70 höggum eða tveimur undir pari vallarins á Hverdal meistaramótinu í Svíþjóð sem er hluti af Nordic Ecco mótaröðinni.

Birgir Leifur fékk fjóra fugla, tvo skolla en lék 12 holur á parinu. Ólafur Björn Loftsson er einnig á meðal keppenda en hann hefur ekki lokið leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert