Birgir Leifur í fremstu röð

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Styrmir Kári

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG og Íslandsmeistari í höggleik, náði sér ágætlega á strik á fyrsta keppnisdegi á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í Portúgal í dag. Hann lék á 69 höggum, þremur höggum undir pari og er í 4. til 12. sæti. 

Birgir Leifur er tveimur höggum á eftir efstu mönnum. 

Mótið er haldið á Ribagolf í Lissabon. Keppendur eru 94 og komast 30 þeirra áfram á annað stig að lokinni fjögurra daga keppni. 

Frá þessu er greint á kylfingur.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert