Norður-Írinn Rory McIlroy, efsti maður heimslistans í golfi, fór fyrir sínum mönnum í fagnaðarlátunum eftir að Evrópa vann Bandaríkin af öryggi í Ryder-bikarnum í golfi um helgina.
McIlroy djammaði duglega með liðsfélögum sínum, sem og liðsmönnum Bandaríkjanna, eftir að sigurinn var í höfn. Hann eyddi hluta kvöldsins meðal annars ber að ofan í Skotapilsi, með rauða hárkollu á höfðinu, og ekki annað að sjá en að kylfingarnir skemmtu sér hið besta.
McIlroy lá greinilega á að fagna eins og meðfylgjandi myndband sýnir þar sem Norður-Írinn opnaði óvart kampavínsflösku við 18. flötina á Gleneagles-vellinum, og fékk landa sinn Graeme McDowell til að skella upp úr.
Öllum stærstu mótum tímabilsins er nú lokið hjá McIlroy en hann mun þó keppa á fjölda móta fram til áramóta, meðal annars fjórum mótum á Evrópumótaröðinni.