Ágæt byrjun Ólafíu í Marokkó

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mbl.is/Styrmir Kári

Íslandsmeistarinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er í ágætri stöðu eftir fyrsta hring á fyrra stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hún lék á 74 höggum í Marokkó og er í 7. - 11. sæti en tuttugu og níu kylfingar komast áfram á seinna stigið af þessum velli.

Ólafía er tvö högg yfir pari vallarins og fimm á eftir efstu konu. Hún sagðist í samtali við netmiðilinn Kylfing.is hafa púttað ágætlega á hringnum og bjargað sér ágætlega úr erfiðum aðstæðum á krefjandi og erfiðum velli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert