Birgir Leifur á fjórum undir

Birgir Leifur Hafþórsson lék á fjórum höggum undir pari í …
Birgir Leifur Hafþórsson lék á fjórum höggum undir pari í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Birgir Leifur Hafþórsson lék á 68 höggum í dag, fjórum undir pari, á þriðja hring á lokastigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í dag. Hann er þar með á einu höggi yfir pari eftir þrjá keppnisdaga og er sem stendur í 56. sæti af 156 keppendum en þess ber að geta að um helmingur þess hóps á eftir að ljúka spilamennsku sinni í dag. 

Birgir Leifur var á tveimur höggum undir pari eftir níu holur í morgun og vann síðan fljótlega önnur tvö högg á seinni níu holunum. Hann verður að öllum líkindum að leika jafnvel á fjórða hringnum á morgun til þess að eiga möguleika á að vera í hópi þeirra sjötíu kylfingar sem fá tækifæri til að leika tvo síðustu hringina á miðvikudag og fimmtudag. Þá verður barist um 20 sæti á Evrópumótaröðinni á næsta keppnistímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert