Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson endaði í átjánda sæti á öðru móti ársins á atvinnumannamótaröð í Skandinavíu, Nordic League, en mótið fór fram á Spáni.
Leikið var á tveimur völlum og lék Ólafur stöðugt golf alla hringina þrjá. Hann var á tveimur höggum yfir pari, (72-73-72), þrátt fyrir erfiðar aðstæður, en fresta þurfti leik þrisvar sinnum á öðrum degi vegna vinds.
Framundan eru tvö mót hjá honum á svipuðum slóðum í næstu viku þar sem keppt verður á PGA Catalunya, einu besta golfsvæði Evrópu.