Valdís Þóra komst áfram í Frakklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Guðmundur Karl

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir komst í dag í gegnum niðurskurðin á Generali de Dinard meistaramótinu sem fram fer í Frakklandi. Valdís lék á 71 höggi í dag en samtals var hún á sjö höggum yfir pari sem reyndist vera niðurskurðarlína mótsins.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék á sex höggum yfir pari eða 75 höggum í dag og var því á samtals níu höggum yfir pari sem dugði ekki til í þetta sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert