Tinna með tveggja högga forskot

Tinna Jóhannsdóttir, GK.
Tinna Jóhannsdóttir, GK. Ljósmynd/GSÍ

Tinna Jóhannsdóttir úr GK er með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn í kvennaflokki á Securitas-mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer í Vestmannaeyjum.

Tinna er samtals á fimm höggum yfir pari. Kylfingar úr Keili eru í þremur efstu sætunum í kvennaflokknum en Anna Sólveig Snorradóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru á sjö höggum yfir pari. Systurnar Heiða og Karen Guðnadætur eru á tíu höggum yfir pari, en Heiða var efst eftir fyrsta hringinn í morgun.

Aðstæður voru frábærar í Vestmannaeyjum í dag, en leiknar voru 36 holur.

Staðan í kvennaflokki fyrir lokahringinn:

1. Tinna Jóhannsdóttir, GK 145 högg (74-71) +5
2. – 3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 147 högg (76-71) +7
2. – 3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 147 högg (74-73) +7  
4. – 5. Heiða Guðnadóttir, GM 150 högg (72-78) +10
4. – 5. Karen Guðnadóttir, GS 150 högg (79-71) +10
6. Berglind Björnsdóttir, GR 153 högg (76-77) +13
7. Saga Traustadóttir, GR 156 högg (81-75) +16
8. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG 157 högg (77-80) +17
9. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 157 högg (79+78) +17
10.–11. Þórdís Geirsdóttir, GK 158 högg (80+78) +18
10.–11. Signý Arnórsdóttir, GK 158 högg (87-71) +18

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert