Birgir Leifur Hafþórsson lék góðan hring á Áskorendamótinu sem fram fer á Hartl golfsvæðinu í Bad Griesbach í Þýskalandi þessa dagana. Birgir Leifur lék hringinn í dag á 68 höggum eða þremur undir pari vallarins og hoppaði upp um 49 sæti með spilamennsku sinni í dag.
Birgir lék á 74 höggum í gær eða þremur yfir pari vallarins og er því á pari eftir hringina tvo. Líklegt þykir að þetta stigaskor dugi Birgi til þess að komast áfram á Áskorendamótinu.
Suður-Afríkumaðurinn Dean Burmester er efstur eins og sakir standa en Portúgalinn Ricardo Gouveia sem var eftir eftir fyrsta keppnisdaginn er að leika sinn hring þessa stundina og er tveimur höggum frá efsta sætinu.