Fowler hrósaði sigri í Skotlandi

Rickie Fowler og Tiger Woods takast í hendur á 18. …
Rickie Fowler og Tiger Woods takast í hendur á 18. braut á mótinu um helgina. AFP

Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler hrósaði sigri á opna skoska mótinu í golfi sem lauk á Gullane-vellinum í gær.

Fowler tryggði sér sigurinn með því að fá fugl á síðustu holunni en mjög hörð keppni var um sigurinn. Fowler lauk kepppni á 268 höggum eða 12 höggum undir parinu en Bandaríkjamaðurinn Matt Kuchar og Frakkinn Raphael Jacquelin komu á hæla hans en þeir luku keppni á 269 höggum.

Þetta var fjórði sigur hins 26 ára gamla Fowlers á atvinnumannaferlinum en fyrr á þessu ári hrósaði hann sigri á Players-meistaramótinu. gummih@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert