Þrír ungir kylfingar keppa í Austurríki

Ragnar Már Garðarsson
Ragnar Már Garðarsson mbl.is/Styrmir Kári

Þrír ungir kylfingar úr GKG hefja leik í dag á sterku áhugamannamóti í golfi sem haldið er í Austurríki.

Um er að ræða þá Ragnar Már Garðarsson, Aron Snær Júlíusson og Emil Þór Ragnarsson en allir voru þeir í keppni á Íslandsmótinu á Akranesi sem lauk á sunnudag.

Mótið heitir Amateur Meisterschaft og þykir mjög sterkt áhugamannamót.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert