Besti hringur Tigers í tvö ár

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Tiger Woods, sem var lengi besti kylfingur heims, átti sinn besta hring í tvö ár í dag þegar hann lék á 66 höggum, eða 5 höggum undir pari, á Quicken Loans National-mótinu á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum.

Tiger sem lék á 68 höggum í gær er höggi á eftir Retief Goosen og Ollie Schniederjans sem eru í forystunni á mótinu. 

Woods hefur átt í miklum erfiðleikum í ár en hann féll úr efsta sæti heimslistans niður í 266. sæti á einungis tveimur árum. Hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á hvorki Opna bandaríska meistaramótinu né Opna breska í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert