Valdís og Ólafía í toppbaráttu

Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir mbl.is/GSÍ

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR eru í toppbaráttunni á móti í Finnlandi á LETAS-mótaröðinni sem þær hafa spilað á í sumar.

Valdís er í 2. - 4. sæti á 69 höggum sem er tvö högg undir pari. Ólafía notaði einu höggi meira og er í 5. - 10. sæti eftir fyrsta dag. Valdís er aðeins höggi á eftir þeim kylfingi sem er í efsta sæti.

54 holur eru leiknar í mótinu og tekur það því þrjá daga eins og venja er á þessari mótaröð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert