Ólafía byrjar vel í Sviss

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék vel í Sviss í dag.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék vel í Sviss í dag.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, lék fyrsta hringinn á LET Access mótaröðinni í Sviss á pari vallarins. Mótaröðin er undirbúningsmót fyrir evrópsku mótaröðina þar sem Ólafía Þórunn verður meðal keppenda.

Mótið stendur yfir í þrjá daga þar sem leiknar verða 54 holur og verður keppendum fækkað eftir 36 holur á föstudaginn. Alls eru 126 keppendur á þessu móti frá 28 þjóðum. Mótið fer fram á Golf Club Gams Werdenberg í Gams í Sviss. Heildarverðlaunaféð er 4,3 milljónir kr.

Ólafía lék á sínu fyrsta móti á þessu ári á Terre Blanche mótinu í Frakklandi í lok mars og þar náði hún fínum árangri og lék á einu höggi undir pari samtals og endaði á meðal 15 efstu. Margir kylfingar sem eru með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni eru á meðal keppenda á þessu móti. Mótið er því sterkt og gefur mörg stig á heimslistann.

Ólafía undirbýr sig af krafti fyrir fyrsta mótið á sjálfri LET Evrópumótaröðinni sem hefst í byrjun maí. Ólafía er með keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki, en hún fær samt sem áður ekki mörg tækifæri á þeirri mótaröð á sínu fyrsta keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert